Ingibjörg Ólafsdóttir nýr varaformaður SAF

[:IS]Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar hefur kjörið Ingibjörgu Ólafsdóttur varaformann samtakanna, en hún tekur við af Pétri Þ. Óskarssyni sem á dögunum var ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu.
Pétur hefur setið í stjórn SAF frá árinu 2017, en hann starfaði síðustu ár sem yfirmaður samskiptasviðs Icelandair Group.
Ingibjörg var kjörin í stjórn SAF á aðalfundi samtakanna vorið 2017. Hún hefur um langt árabil starfað á vettvangi ferðaþjónustunnar og er í dag hótelstjóri á Radisson Blu Hótel Sögu.
SAF óska Ingibjörgu til hamingju með embættið og Pétri velfarnaðar í nýju starfi hjá Íslandsstofu og hlakka til að starfa með þeim áfram að framgangi ferðaþjónustu á Íslandi.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …