Greiddu 550 milljarða í laun 2017

[:IS]Launagreiðslur lítilla og meðalstórra fyrirtækja hafa nær tvöfaldast frá árinu 2010 og námu á árinu 2017 um 550 milljörðum króna. Þetta kom m.a. fram á opnum fundi Litla Íslands sem fram fór í morgun en Hagstofa Íslands tók gögnin saman fyrir Litla Ísland.
Óttar Snædal, hagfræðingur á efnahagssviði SA, fjallaði um umfang og mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi sem eru uppistaðan í atvinnulífinu.

Geta litlu fyrirtækin hækkað kaupið? var yfirskrift fundarins en ljóst er að svigrúm til launahækkana nú er takmarkað eftir miklar launahækkanir undanfarinna ára. Niðurstaða komandi kjarasamninga mun ráða miklu um rekstrarumhverfi fyrirtækja á næstu misserum en sjö af hverjum tíu starfsmönnum á vinnumarkaði vinna hjá litlu eða meðalstóru fyrirtæki, alls um 100 þúsund starfsmenn. Lítil og meðalstór fyrirtæki greiða 68% af greiddum launum í landinu.
Á fundi Litla Íslands ræddu stjórnendur minni fyrirtækja um stöðu og horfur út frá eigin rekstri. Þátt tóku Brynja Brynjarsdóttir, eigandi Hraunsnefs sveitahótels, Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns verkfræðistofu, Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar og Hrefna Björk Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Rok restaurant. Voru þau sammála um að staðan væri viðkvæm en laun á undanförnum árum hafa hækkað hlutfallslega mest hjá minni fyrirtækjum en launakostnaður vegur þungt í rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Fyrirtæki sem kölluð eru örfyrirtæki í hagtölum, með 1-9 starfsmenn, eru mikilvæg í atvinnulífinu og greiddu t.a.m. 126 milljarða króna í heildarlaun árið 2017. Lítil fyrirtæki, með allt að 49 starfsmenn greiddu 216 milljarða og meðalstór fyrirtæki með allt að 249 starfsmenn greiddu 210 milljarða.
Ríkið tekur til sín drjúgan hlut þessara greiðslna og til að mynda nam tryggingagjald 60 milljörðum króna 2017 en lítil fyrirtæki hafa ítrekað kallað eftir lækkun gjaldsins sem heftir nýsköpun og heldur aftur af fjölgun starfa.
Launakostnaður fyrirtækja er hár en á fundi Litla Íslands var sýnt hvernig heildargreiðslur atvinnurekenda eru mun hærri en umsamin laun. Af hverjum 100 krónum sem renna til launafólks þarf atvinnurekandinn hins vegar að greiða 157 krónur og munar um minna.
Hægt er að horfa á upptöku af fundinum sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík á Facebook-síðu Litla Íslands. Sigmar Vilhjálmsson stýrði fundinum en sérstakur gestur hans var Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðabæjar.

Litla Ísland er vettvangur þar sem lítil fyrirtæki vinna saman óháð atvinnugreinum en landið var stofnað árið 2013. SA og aðildarsamtök eru bakhjarlar Litla Íslands.[:]

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …