Óskað eftir tilnefningum fyrir Ábyrgra ferðaþjónustu 2018

[:IS]Íslenski ferðaklasinn og Festa sem framkvæmdaaðilar að hvatningaverkefninu um Ábyrga ferðaþjónustu óska eftir tilnefningum um fyrirmyndarfyrirtæki á því sviði árið 2018.
Sérstök verðlaun verða afhent á degi Ábyrgrar ferðaþjónustu sem fram fer í Veröld – húsi Vigdísar fimmtudaginn 6.desember kl 9.00. Verðlaunin afhendir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands sem jafnframt er verndari verkefnisins.
Horft er til þess í Ábyrgri ferðaþjónustu að fyrirtæki setji sér markmið í eftirfarandi flokkum:

  • Ganga vel um og virða náttúruna
  • Tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi
  • Virða réttindi starfsfólks
  • Hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið

Ætlast er til að í rökstuðningi sé m.a leitast við að svara:

  1. Hefur fyrirtækið birt markmið um ábyrga ferðaþjónustu á vef sínum? (slóð)
  2. Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um að ganga vel um og virða náttúruna?
  3. Hvernig mælið þið öryggi ferðamanna og háttvísi í þeirra garð?
  4. Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um réttindi starfsfólks?
  5. Getur þú gefið dæmi um hvernig fyrirtækið hefur jákvæð áhrif á nærsamfélagið?

Tilnefningar óskast sendar á netfangið arni@icelandtourims.is fyrir miðnætti þann 30.nóvember 2018.[:]

Tengdar fréttir

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skora á ríkisstjórnina að hlusta á raunverulegar áhyggjur fólks sem starfar í ferðaþjónustu um land allt og endurskoða boðaðar …

Mótvindur: eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar? | Skattspor ferðaþjónustunnar árið 2025 kynnt Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins bjóða leikum og lærðum á …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …