Fagorðalisti ferðaþjónustunnar ( 100 orða listi) er kominn út

[:IS]

Til að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks í ferðaþjónustu hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar tekið saman lista yfir algeng orð sem notuð eru í greininni. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku og eru aðgengilegir á prentuðum veggspjöldum og á heimasíðu Hæfnisetursins. Þar má jafnframt heyra framburð orðanna á íslensku og senda inn tillögur að fleiri orðum. Fagorðalistinn var unninn í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og starfsgreinaráð matvæla-, veitinga- og þjónustugreina.
Fagorðalistinn var fyrst kynntur á Menntamorgni ferðaþjónustunnar 31. janúar. María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, sagði af því tilefni að fyrirmyndin væri sótt til Danmerkur og verkefnið ætti sér allnokkurn aðdraganda. Hún sagði vonir standa til þess að fagorðalistarnir geti gagnast fyrirtækjum og auðveldað samskipti á vinnustað.
Nálgast má veggspjöldin á skrifstofu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar í Skipholti eða á skrifstofu SAF. Fyrirtæki á landsbyggðinni geta pantað veggspjöld hér

[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …