Íslensk ferðaþjónusta keppi í gæðum

[:IS]Á Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem fram fór í Húsi atvinnulífsins 31.1.19 sagði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), að mikilvægt væri að fyrirtæki fjárfestu í hæfni starfsmanna og þar með meiri fagmennsku.
Þetta er stóri möguleikinn okkar til þess að bæta samkepnishæfni ferðaþjónustunnar á Íslandi, það er að bæta gæðin, bæta hæfni starfsfólksins og þar með hæfni og möguleika fyrirtækjanna til þess að veita góða þjónustu […] Þá erum við farin að keppa á grundvelli sem við getum í alvöru unnið á. […] Við þurfum að færa okkur upp í gæðum og þetta er besta leiðin til þess.
Íslenskan var gerð að umfjöllunarefni á þessum fyrsta fundi í fundarröðinni Okkar bestu hliðar – Menntamorgnar ferðaþjónustunnar, sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF standa fyrir. Meðal dagskrárefnis var erindi Stefáns Karls Snorrasonar, starfsþróunar- og gæðastjóra hjá Íslandshótelum og Marina Isabel Pimenta de Quintanilha e Mendonça, leiðsögumanns og kennara íslensku sem annars tungumáls: Hvernig gengur með íslenskuna? Þá flutti Andri Snær Magnason rithöfundur erindið: Nokkur orð um smámálið. Hildur Hrönn Oddsdóttir sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar kynnti verkfærakistu Hæfnisetursins og María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, kynnti fagorðasafn ferðaþjónustunnar. Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, stýrði umræðum í lok fundar.
Á mynd: Stefán Karl Snorrason, Hildur Hrönn Oddsdóttir, Sveinn Aðalsteinsson, Andri Snær Magnason, María Guðmundsdóttir, Marina Isabel Pimenta de Quintanilha e Mendonca og Jóhannes Þór Skúlason.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …