Breki Logason

[:IS]Breki Logason, framkvæmdastjóri Your day tours
Breki Logason er framkvæmdastjóri og einn eigenda ferðaþjónustufyrirtækisins Your Day Tours. Hann stofnaði fyrirtækið ásamt bræðrum sínum árið 2015 og einblína þeir aðallega á dagsferðir.
Breki er 36 ára og starfaði lengi sem blaða- og fréttamaður á helstu fjölmiðlum landsins. Hann hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr þeim geira en hann er meðal annars sá yngsti sem gegnt hefur stöðu fréttastjóra Stöðvar 2. Hann hefur einnig sinnt ráðgjafastörfum og unnið sem hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofu. Breki er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
„Ferðaþjónustan er okkar öflugasta atvinnugrein og hér á landi starfa ferðaþjónustufyrirtæki á heimsmælikvarða. Greinina þarf áfram að byggja upp af þeim krafti sem verið hefur og afar mikilvægt er að við sem í henni störfum vinnum að því markmiði saman. Þegar þrengir að á mörgum stöðum er mikilvægt að standa vörð um það sem vel er gert. Samtök Ferðaþjónustunnar spila lykilhlutverk í því að sinna hagsmunagæslu fyrir greinina alla, líka okkur litlu aðilana – og ég vil taka þátt í þeirri vinnu. Ég tel að reynsla mín sem fjölmiðlamaður og sú vegferð sem ég hef verið á síðustu ár við að byggja upp frá grunni öflugt fyrirtæki í greininni muni nýtast vel í þeirri baráttu sem framundan er. Góðar stundir.“[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …