Forkeppni Norrænu nemakeppninnar 2019

Forkeppni Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu fór frma í Hótel – og matvælaskólanum miðvikudagunn 9. janúar. Samtals tóku sjö matreiðslunemar og átta framreiðslunemar þátt í lokakeppninni.

Verkefni matreiðslunemanna var:

Matreiða forrétt fyrir sex manns – hráefnið var bleikja, aspas og hollandaise sósa. Bleikjan var í heilu u.þ.b 1,2 til 1,5 kg. Keppendur flökuðu fiskinn á staðnum – öll vinna var á staðnum.

Eftirréttur fyrir sex manns – hluti af eftirréttinum var Baba au Rhum sem átti að vera ekki minna en 35% af heildarstærð réttarins.  Einnig átti að nota hindber og hvítt súkkulaði. Heimilt var að koma með deig.

Verkefni framreiðslunemanna var:

Bar, blanda skal tvo drykki fyrir gesti  (annan óáfengann), dregið er hvaða drykki skal blanda

Kvöldverðaruppdekkning fyrir 6  rétti  fyrir fjóra gesto. Matseðill: Forréttur, seyði, fiskréttur, aðalrétur, ostar og efitirréttur. Vín – sherry, hvítvín, rauðvín og eftirréttavín

Sérvettubrot

Eldsteiking

Fyrirskurður

Í matreiðslu voru hlutskarpastir þeir Gabríel Kristinn Bjarnason nemi á Radisson SAS, Hótel Sögu, meistari er Ólafur Helgi Kristjánsson og Wiktor Pálsson nemi á Radisson SAS, Hótel Sögu, meistari er Sigurður Helgason.

Í framreiðslu voru efst Fanney Rún Ágúsdóttir nemi á Blá lóninu, meistari Styrmir Örn Arnarson og Guðjón Baldur Baldursson nemi VOX, Hilton Nordica meistri er Ólöf Kristín Guðjónsdóttir.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …