Lífskjarasamningurinn 2019-2022

[:IS]Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði 2019-2022 voru undirritaðir hjá ríkissáttasemjara að kvöldi 3. apríl. Í kjölfarið voru aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings samningunum ásamt helstu atriðum þeirra kynntir í Ráðherrabústaðnum.
Lífskjarasamningurinn 2019-2022 er yfirskrift þeirra fjölmörgu samninga og yfirgripsmiklu aðgerða sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa sammælst um næstu árin. Kynningu samningsins má nálgast hér á vef SA ásamt boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í kvöld að Lífskjarasamningurinn snúist um fjórþætta lausn. Hærri laun, einkum lágtekjuhópa, aukinn sveigjanleika til að stytta vinnuvikuna, lægri skatta og leiðir til að skapa jarðveg fyrir lægri vexti á Íslandi til framtíðar. Það sé til hagsbóta fyrir bæði heimilin og fyrirtækin í landinu.

Fjölmenni var í karphúsinu við undirritun samninganna sem ná til tæplega 100 þúsund manns. Samningurinn nær til félaga Starfsgreinasambandsins, LÍV, VR og Samtaka atvinnulífsins. Þá hafa Sambönd íslenskra sveitarfélaga skrifað undir yfirlýsingu vegna Lífskjarasamningsins.

Ítarlega verður fjallað um efni samninganna á vef SA á næstunni en hér að neðan má sjá upptöku RÚV frá blaðamannafundinum í Ráðherrabústaðnum að lokinni undirskrift samninganna.

Tengt efni:

[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …