Stjórnarmenn fóstra fagnefndir

[:IS]Á vettvangi Samtaka ferðaþjónustunnar á sér stað öflugt grasrótarstarf hjá fagnefndum samtakanna. Samhliða aðalfundi SAF er kosið í 7 fagnefndir ásamt því að stjórn samtakanna skipar árlega sérstaka umhverfisnefnd og siglinganefnd en á næsta aðalfundi verður kosið í siglinganefnd samhliða öðrum nefndum samtakanna. Til að styrkja tengingu á milli stjórnar SAF og fagnefndanna hafa stjórnarmenn tekið að sér að „fóstra“ nefndirnar.
Hlutverk fóstra er að tryggja greið upplýsingaskipti á milli stjórnar og fagnefndar SAF og stuðla þannig að greiðum samskiptum þessara aðila. Fóstra ber þannig að kynna fyrir stjórn öll gögn og upplýsingar um sem nefndin telur þörf á að stjórn hafi vitneskju um eða taki til umfjöllunar. Þá skal fóstri tryggja að ályktanir fagnefnda til stjórnar verði teknar til umræðu á vettvangi stjórnar eins fljótt og unnt er og að sama skapi halda fagnefndum upplýstum og framgang þeirra mála innan stjórnar.

  • Starfsreglur fóstra fyrir fagnefndir innan SAF má finna HÉR.

Á fundi stjórnar SAF 2. apríl s.l. var ákveðið að fóstrar fagnefnda starfsárið 2019-2020 verði sem hér segir:

  • Flugnefnd og umhverfisnefnd – Ásdís Ýr Pétursdóttir
  • Gististaðanefnd og siglinganefnd – Ingibjörg Ólafsdóttir, varaformaður
  • Ferðaskrifstofunefnd – Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður
  • Hópbifreiðanefnd – Björn Ragnarsson
  • Veitinganefnd – Jakob Einar Jakobsson
  • Bílaleigunefnd – Ívar Ingimarsson
  • Afþreyingarnefnd – Ólöf R. Einarsdóttir

[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …