SAFx 2019 – Stafræn markaðssetning

[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til SAFx 2019 – fyrirlestraviðburðar um notkun samfélagsmiðla og tæknilausna í stafrænni markaðssetningu föstudaginn 10. maí í Kaldalóni í Hörpu frá kl. 8.30 – 11.00.
Viðburðurinn er haldinn samhliða markaðstorgi IcelandTravelTech sem haldin er í Hörpu sama dag á vegum Íslenska ferðaklasans og Ferðamálastofu.
Á dagskránni eru sex stuttir fyrirlestrar sem koma að efninu frá mismunandi sjónarhornum en með áherslu á hagnýta nálgun á viðfangsefnið.
Aðgangseyrir er kr. 3.900, en miði á IcelandTravelTech gildir einnig á SAFx 2019.

DAGSKRÁ SAFx 2019:
Í sporum ferðamannsins – hvernig leiðbeina má ferðamanninum í gegnum ferðahringrásina og til þín
Helgi Þór Jónsson ráðgjafi og framkvæmdastjóri Sponta
Hvað er í boði í Google svítunni – lásí eða lúxus?
Soffía Þórðardóttir framkvæmdastjóri ferðalausna hjá Origo
Heiðarleiki, hjarta og upplifun – hvernig nær lítið fyrirtæki athygli í stórum stafrænum heimi?
Eva María Þórarinsdóttir Lange, framkvæmdastjóri Pink Iceland
– – Netagerðarhlé – –
Snjallbirtingar fyrir snjalla öld – að nýta gögn, sjálfvirkni, mælingar og tækni til að ná árangri
Hörður Kristófer Bergsson sérfræðingur í starfrænni markaðssetningu hjá Datera snjallbirtingarhúsi
Eitt myndband getur sagt meira en 30 þúsund orð
Ásthildur Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri samfélagsmiðladeildar hjá Sahara
Ísland: Stafrænn sandkassi – mótun framtíðarlausna í ferðaþjónustu
Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnastjóri á sviði stafrænnar ferðaþjónustu hjá Ferðamálastofu

Munið að taka nafnspjöldin með, því að í hléi og á markaðstorginu er auðvitað rakið tækifæri til að kynnast nýju fólki og koma á áhugaverðum tengslum![:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …