Hæfni er grunnur að gæðum – BEIN ÚTSENDING

[:IS]Mánudaginn 20. maí kl. 10.00 – 13.00 fer fram kynning á skýrslu sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur unnið í samstarfi við atvinnulíf og menntakerfi. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir ávarpa fundinn. Skýrslan, Hæfni er grunnur að gæðum, er innlegg atvinnulífsins í mótun mennta- og hæfnistefnu fyrir ferðaþjónustu. Að loknum kynningum á skýrslunni gefst gestum tækifæri til þess að ræða efni skýrslunnar og koma ábendingum og athugasemdum á framfæri. Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Hyl.

DAGSKRÁ
10.00 Velkomin
María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stjórnar Hæfnisetursins
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
10.05 Ávarp
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
10.15 Ávarp
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
10.25 Kynning á niðurstöðum skýrslunnar
Haukur Harðarson, verkefnastjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
10.50 Þrepaskipt
Eyrún Valsdóttir, formaður stjórnar FA
11.00 Hagnýtt
Jakob Jakobsson, framkvæmdastjóri Jómfrúnni
11.10 Aðgengilegt
Ómar Kristinsson, sviðsstjóri VMA
11.20 Þrír stjórnendur segja frá reynslu sinni af verkefninu Fræðsla í ferðaþjónustu  
11.30 Hópavinna
12.05 Niðurstöður hópavinnu
12.15 Léttur hádegisverður
Fundarstjóri: Sveinn Aðalsteinsson
—
HÉR MÁ NÁLGAST SKÝRSLUNA:
[:]

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …