Félagsfundur um gjaldeyrisáhættu og gengisvarnir í rekstri fyrirtækja – BEIN ÚTSENDING

[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar bjóða félagsmönnum á fræðslufund um gengisvarnir í rekstri fyrirtækja miðvikudaginn 22. maí. Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, og stendur á milli kl. 8.30 og 10.00.

Kjartan Hauksson gjaldeyrissérfræðingur hjá Arion banka fer yfir góð ráð til að draga úr gjaldeyrisáhættu í rekstri ferðaþjónustu og möguleika fyrirtækja til að nýta sér gengisvarnir.
Ljóst er að þegar ýmsir samverkandi þættir leggjast nú á eitt er ljóst að líkur á veikingu krónunnar á næstu 6-8 mánuðum sem komið gæti til móts við aukinn kostnað fyrirtækja í ferðaþjónustu eru litlar. Því er mikilvægt fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu að kynna sér vel þá möguleika sem eru fyrir hendi í gengisvörnum og til að draga úr neikvæðum áhrifum gjaldseyrisáhættu á reksturinn.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …