Hertz hrindir af stað samstarfsverkefni í öryggismálum ferðamanna

[:IS]Í byrjun maímánaðar var hrint af stað sam­starfs­verk­efni Hertz, Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar og Sjóvá um sér­hannað öku­próf fyrir ferðafólk. Verk­efnið gengur út á að allir sem leigja bíl hjá Hertz þurfa að horfa á mynd­band og taka í kjöl­farið ra­f­rænt próf og er bíla­leigu­bíll ekki af­hentur fyrr en leigutaki hefur staðist prófið.
Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir, ráðherra ferðamála, setti verk­efnið form­lega af stað  með því að þreyta prófið og stóðst það villu­laust. Lands­björg mun halda utan um verk­efnið og verður prófið aðgengi­legt á vef Sa­fetra­vel.
Bíla­leigan Hertz hefur verið öflug í for­varn­ar­starfi og er  sí­fellt að leita nýrra leiða til að ná til ferðafólks og auka þannig ör­yggi í um­ferðinni. Í byrjun verður ökuprófið í boði hjá úti­búi bíla­leigu Hertz við Flug­vall­ar­veg en í kjöl­farið verður það út­fært á fleiri stöðum og von­andi tekið upp hjá fleiri bíla­leigum.[:]

Tengdar fréttir

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni …

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …