[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar og bílaleigunefnd SAF hafa komist að rammasamkomulagi við þjóðgarða Þingvalla og Vatnajökuls um fyrirkomulag á greiðslum bílastæðagjalda sem ekki innheimtast af ökumönnum bifreiða á gjaldskyldum bílastæðum þjóðgarðanna. Samkomulagið mun taka gildi 1.7.2019 og gengur út á að bílaleigur sem skrá sig á greiðslusvæði þjóðgarðanna fá 50% afslátt af þeim viðburðum sem sendir verða á bílaleigur en viðburðir verða sendir með tölvupósti 24 tímum eftir að bílaleigubíll yfirgefur Þjóðgarðinn á Þingvöllum eða gjaldskylt svæði innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Samkomulagið felur einnig í sér að þær kröfur sem myndast hafa fram til 30.6.2019 verða felldar niður. Gert er ráð fyrir að fara yfir árangur rammasamkomulagsins í lok sumars.
Hér á eftir eru upplýsingar um hvernig skráning fer fram.
- Bílaleiga skráir sig á vef MyParking á: https://www.myparking.is/signup/rental/
- Farið verður yfir skráninguna og staðfest að tölvupóstsamskipti virki.
- Umsækjandi fær aðgangsupplýsingar sendar á tengilið sem notaðar eru til innskráningar á myparking.is þar sem hægt er að sjá viðburði jafn óðum og þeir stofnast.
- Tölvupóstar með kvittunum byrja að berast bílaleigum með viðburðum sem verða til eftir 1. júlí.
- Kvittun tilgreinir verð fyrir hvern viðburð tengt bílnúmeri.
- Þjóðgarðarnir senda reikning og kröfu á bílaleigur að mánuði loknum fyrir uppsöfnuðum viðburðum þess mánaðar með umsömdum afslætti.
- Fyrirspurnir varðandi aðganga eða upplýsingar í vefviðmóti skulu berast á: support@myparking.is
[:]