Óskað eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna SAF 2019

Samtök ferðaþjónustunnar afhenda á ári hverju nýsköpunarverðlaun samtakanna fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að 300.000 krónum fyrir verkefni sem stjórn sjóðsins telur að skari fram úr hverju sinni. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á afmælisdegi SAF, 11. nóvember n.k.

Verður þetta í 16. skipti sem nýsköpunarverðlaun SAF verða afhent, en verðlaunahafar til þessa hafa verið:

  • 2018 – Bjórböðin
  • 2017 – Friðheimar
  • 2016 – Óbyggðasetur Íslands
  • 2015 – Into The Glacier
  • 2014 – Gestastofan Þorvaldseyri
  • 2013 – Saga Travel
  • 2012 – Pink Iceland
  • 2011 – KEX hostel
  • 2010 – Íslenskir fjallaleiðsögumenn
  • 2009 – Fuglasafn Sigurgeirs í Mývatnssveit
  • 2008 – Menningarsetrið Þórbergssetur, Hala í Suðursveit
  • 2007 – Norðursigling – Húsavík
  • 2006 – Landnámssetur Íslands
  • 2005 – Adrenalín.is, VEG Guesthouse á Suðureyri og Fjord Fishing
  • 2004 – Sel Hótel Mývatn og Hótel Aldan

Eru félagsmenn vinsamlega hvattir til að senda tilnefningar ásamt rökstuðningi til skrifstofu SAF til og með 1. nóvember á netfangið saf@saf.is eða með því að senda póst í Borgartún 35, 105 Reykjavík.

Það er von sjóðsstjórnar og stjórnar SAF að félagsmenn taki virkan þátt í leit að verðugum verkefnum þar sem nýsköpun og öflug vöruþróun er grundvöllur allra framfara í íslenskri ferðaþjónustu.

Tökum virkan þátt en jafnframt hikið ekki við að benda á ykkar eigið fyrirtæki!

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri

Ljósmynd: Frá afhendingu nýsköpunarverðlauna SAF 2018. Hjónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, eigendur Bjórbaðanna ásamt Bjarnheiði Hallsdóttur, formanni Samtaka ferðaþjónustunnar og Elizu Reid, forsetafrú.

Tengdar fréttir

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni …

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …