Menntamorgun ferðaþjónustunnar í Húsi atvinnulífsins

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF boða til morgunverðarfundar í fundaröðinni Okkar bestu hliðar – menntamorgnar ferðaþjónustunnar fimmtudaginn 24. okt. nk. Umfjöllunarefni fundarins er fræðsla í ferðaþjónustu með áherslu á millistjórnendur og stjórnendafræðslu. Fundurinn fer fram í salnum Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Allir velkomnir en skrá þarf þátttöku.

Vinsamlegast skráið þátttöku HÉR.

DAGSKRÁ:

  • Fræðsla í ferðaþjónustu – Náðu árangri!
    Jóna Valborg Árnadóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
  • Stjórnendahæfni er forsenda árangurs
    Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir frá LC Ráðgjöf
  • Stjórnendafræðsla – Hvað er í boði?
    Fjölbreyttur hópur fræðsluaðila kynnir
  • Kaffi og tengslamyndun með fræðsluaðilum
  • Reynslusögur – Fyrirtæki kynna hvað þau eru að gera í stjórnendafræðslu
  • Bláa Lónið: Að vaxa sem leiðtogi
    Kolbrún Magnúsdóttir, fræðslu- og starfsþróunarstjóri
  • Hendur í höfn: Að sleppa takinu
    Dagný Magnúsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri

Fundarstjóri er Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF

Minnum á skráningu HÉR.

Hægt verður að fylgjast með streymi frá fundinum á facebook-síðum Samtaka ferðaþjónustunnar og Hæfnisetursins.

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …