Menntadagurinn 2020 í Sjónvarpi atvinnulífsins

Sköpun í alls kyns myndum var til umfjöllunar á Menntadegi atvinnulífsins sem fór fram í Hörpu 5. febrúar. Rúmlega 300 manns úr atvinnulífinu tóku þátt og enn fleiri horfðu á beina útsendingu frá fundinum.

Sköpun í alls kyns myndum var til umfjöllunar en upptökur af erindum frummælenda eru nú aðgengilegar í Sjónvarpi atvinnulífsins hér á vef SA ásamt erindum úr málstofu sem fór fram eftir hressandi kaffihlé.

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Orkuveita Reykjavíkur er Menntafyrirtæki ársins og Samkaup Menntasproti ársins. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhentu verðlaunin.

Menntadagurinn er árlegur viðburður, að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …