Aðalfundi SAF 2020 frestað til 6. maí

Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu vegna COVID-19 veirunnar hefur stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar ákveðið að fresta aðalfundi samtakanna sem fara átti fram fimmtudaginn 19. mars 2020.

Ákvörðunin er tekin í samráði við Almannavarnir, en aðalfundur SAF er þannig viðburður að félagsmenn koma alls staðar að af landinu og því ekki forsvaranlegt að efna til fundar. Þá er ferðaþjónusta á Íslandi að glíma við mikla erfiðleika og því mikilvægt að beina kröftunum á þau verkefni sem liggja fyrir.

Nýtt fundarboð // Miðvikudaginn 6. maí 2020 á Hilton Reykjavík Nordica

Boðað er til aðalfundar SAF 2020 miðvikudaginn 6. maí nk. á Hilton Reykjavík Nordica.

Dagskrá aðalfundar skv. lögum SAF:

  1. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
  3. Ársreikningur liðins starfsárs.
  4. Lagabreytingar, enda sé meginefni þeirra kynnt í fundarboði.
  5. Ákvörðun um árgjald.
  6. Kosningar:
    • kosning formanns.
    • kosning 6 meðstjórnenda.
    • kosning löggilts endurskoðanda.
  7. Önnur mál.

Nánari útfærsla á aðalfundinum verður kynnt er nær dregur.

Í samræmi við ákvæði 7. mgr. 10. gr. samþykkta SAF færist framboðsfrestur til stjórnar SAF til 22. apríl, eða 14 dögum fyrir aðalfundardagsetningu. Þau framboð sem þegar hafa borist í stjórn og fagnefndir SAF halda fullu gildi nema félagsmaður dragi framboð sitt til baka.

Þeir félagsmenn sem hafa bókað gistingu á Hilton Reykjavík Nordica geta breytt bókun sinni í bókunarkerfi hótelsins.

Við þær aðstæður sem uppi eru í ferðaþjónustu hér á landi er mikilvægt að félagsmenn í SAF séu í góðum samskiptum við skrifstofu samtakanna og við hvetjum ykkur til að slá á þráðinn eða senda okkur póst með þeim vangaveltum sem upp geta komið. SAF munu að sjálfsögðu leggja áherslu á að liðsinna félagsmönnum eftir fremsta megni.

Gangi okkur vel í baráttunni og hittumst galvösk á aðalfundi SAF á vori komanda.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …