Samtök ferðaþjónustunnar áttu í dag fund með fulltrúum Booking.com á Íslandi og Norðurlöndum þar sem farið var yfir afstöðu SAF og Ferðamálastofu þess efnis að Force majeure aðstæður væru ekki uppi á Íslandi samkvæmt samningsskilum fyrirtækisins. Á fundinum létu SAF það skýrlega í ljós að íslenskum gististöðum er jafnan ekki skylt að endurgreiða ferðamönnum sem bókað hafa gistiþjónustu án réttar til endurgreiðslu („Non-refundable“) í gegnum vefsíðu fyrirtækisins. Booking.com hefur í einhverjum mæli á undanförnum vikum endurgreitt ferðamönnum slíkar bókanir að fullu, að eigin frumkvæði, og komið á framfæri endurkröfu sem því nemur á hendur íslenskum gististöðum.
Að mati SAF og Ferðamálastofu eru framangreindar aðgerðir Booking.com í algeru ósamræmi við inntak force majeure ákvæða samningsskilmála fyrirtækisins. Þær aðstæður sem hér eru uppi geta einfaldlega sjaldnast talist þess valdandi að hingað sé ferðamönnum ómögulegt, ólöglegt eða ófært að koma né nýta þá gistiþjónustu sem þeir hafa bókað. Eins og fram kemur í lögfræðiáliti sem Ferðamálastofa hefur birt á vefsíðu sinni getur bókunarsíða ekki ákveðið einhliða að krefjast endurgreiðslu á óendurgreiðanlegum bókunum. Slíkt er skýrt brot á samningsskilmálum fyrirtækisins. Engar takmarkanir hafa verið settar á komu ferðamanna til landsins og einungis í afar fáum tilvikum hafa erlend stjórnvöld lagt bann við ferðalögum til Íslands.
Í ljósi framangreinds er það skýr afstaða SAF að Booking.com hefur í fæstum tilvikum rétt á því að krefja íslenska ferðaþjónustuaðila um endurgreiðslu á óendurgreiðsluhæfum bókunum. Í tilvikum þar sem slík endurgreiðslukrafa hefur verið sett fram eru ferðaþjónustuaðilar í flestum tilvikum í fullum rétti til að hafna endurgreiðslu.
Engar nýjar upplýsingar komu fram á fundinum af hálfu Booking.com sem gefið hafa SAF ástæðu til að endurskoða afstöðu sína heldur þvert á móti.
SAF benda félagsmönnum á að á vef Ferðamálastofu má finna lögfræðiálit um álitamálið bæði á íslensku og ensku.
Álitið getur gagnast félagsmönnum í samskiptum við Booking.com ef þeir hyggjast hafna endurgreiðslukröfum fyrirtækisins.