SAFx fyrirlestur: Markaðstækifærin í dag

Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir SAFx fyrirlestri í beinni útsendingu úr Húsi atvinnulífsins miðvikdaginn 23. september kl. 13.30. Gestur okkar að þessu sinni er Helgi Þór Jónsson, eigandi SPONTA sem sem sérhæfir sig í stafrænni markaðssetningu og fræðslu fyrir ferðaþjóna. Í fyrirlestrinum mun Helgi Þór fjalla um þau markaðstækifæri sem liggja í innlendri ferðaþjónustu og hvernig fyrirtæki í greininni geta gripið þessi tækifæri.

Ekki láta þennan viðburð framhjá þér fara!

  • Skráning fer fram með því að smella HÉR.

Markaðstækifærin í dag

Í sumar sáum við heimamarkaðinn taka við sér af krafti. Stór hluti kortaveltu Íslendinga erlendis í venjulegu árferði fluttist hingað heim. Neyslan virðist breytast hratt í takt við þær takmarkanir sem gilda hverju sinni.

Eftirspurn frá nýjum markaði í vetur?

  • Fólk þyrstir í að komast út af heimilinu, eftir alls konar útgáfur af sóttkví og samkomubanni.
  • Fólk þyrstir í að hitta vinahópinn. Að fagna stórafmælinu, að halda brúðkaupið, rækta samböndin.
  • Gera má ráð fyrir að hér gefist einstakt tækifæri til að mæta þessari tilbreytingarþrá heimamanna í haust og vetur.
  • Forskotið næst aðeins með því að vera fyrri til og mæta óskum landans, frekar en að bíða og sjá til. Koma með tillögur að einhvers konar dagskrá og afþreyingu fyrir heimamenn.

Reynslusaga með sýnidæmum

Á SAFx 23. september verður sýnt frá markaðsaðgerðum sem skiluðu hratt árangri. Lykillinn að hagkvæmri markaðsherferð er að fylgjast með viðbrögðum markhópsins og endurstilla kerfið þegar gögnin liggja fyrir eftir nokkra daga. Eftir fyrstu vikuna náðist 63% lækkun á birtingarkostnaði.

Niðurstöðurnar, með orðum ferðaþjónsins voru: „Það komu 50 fyrirspurnir á Messenger á tímabilinu 18. júní – 6. ágúst. Fjöldi gistinátta í gegnum Facebook var 17. Meðalverð var 24.117 kr. nóttin. Heildar tekjur 410.000 kr. og birtingarkostnaður 32.000 kr.“

Það er ekki eftir neinu að bíða

Þetta er búin að vera erfiður tími fyrir marga. En mörg fyrirtæki þurfa ekki mikið, ekki stóra sneið af markaðnum til að gjörbreyta stöðunni. Óvissan er einn af fylgikvillum COVID-19, þessi langa bið eftir einhverju sem á hendi festir.

„I’ve lived through some terrible things in my life, some of which actually happened.“
― Mark Twain

Stundum er gott að stíga lítil skref og sjá hvað gerist.

Það góða er, að það er mun hagkvæmara að setja í loftið markaðsherferð fyrir heimamarkað heldur en fyrir erlendan markað. Bókunarfyrirvarinn er mun styttri, þar með liggur árangurinn fyrir mun fyrr. Það hefur sjaldan verið einfaldara og ódýrara að gera tilraunir til að sjá viðbrögð markaðarins – heimamarkaðarins.

Helgi Þór Jónsson,
eigandi SPONTA

Um leiðbeinandann

Helgi Þór Jónsson rekur fyrirtækið SPONTA, sem sérhæfir sig í stafrænni markaðssetningu og fræðslu fyrir ferðaþjóna.

Hann er kerfisfræðingur með langa reynslu af markaðssetningu, sölu, verkefnastjórnun og þróun hugverka af ýmsu tagi. Helgi Þór hefur haldið námskeið fyrir ferðaþjóna um tekjusköpun, sýnileika á netinu, umsjá samfélagsmiðla og mikilvægi réttra viðbragða við umsögnum ferðamanna.

Skráning og fyrirkomulag

SAFx fyrirlesturinn er öllum félagsmönnum í Samtökum ferðaþjónustunnar að kostnaðarlausu.

  • Skráning fer fram með því að smella HÉR.

Fyrirlesturinn verður sendur út í beinni útsendingu miðvikudaginn 23. september kl. 13.30. Hlekkur á útsendinguna verður sendur til þátttakanda.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …