Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu

Nú er opið fyrir tilnefningar til þess fyrirtækis sem ykkur þykir hafa skarað framúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og framúrskarandi samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu.

Tilnefningarnar geta verið frá aðilanum sjálfum eða öðrum og er hægt að tilnefn fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir, einstaklinga eða alla þá sem þykja hafa unnið markvisst að jákvæðri þróun ferðaþjónustu og sjálfbærni, aðilar sem hafa í efni sínu og verki hvatt til ábyrgrar ferðahegðunar, ábyrgra viðskiptahátta og stuðlað að góðri umgengni um íslenska náttúru í sátt við íbúa.

Horft er til eftirfarandi þátta í leitinni að fyrirmyndar fyrirtæki í Ábyrgri ferðaþjónustu:

  • Hefur fyrirtækið birt markmið um ábyrgar ferðaþjónustu á vef sínum?
  • Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um að ganga vel um og virða náttúruna?
  • Hvernig mælir fyrirtækið öryggi ferðamanna og háttvísi í þeirra garð?
  • Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um réttindi starfsfólks?
  • Getur þú gefið dæmi um hvernig fyrirtækið hefur jákvæð áhrif á nærsamfélagið?

Hægt er að tilnefna hér

Ef þú veist um fyrirtæki sem þér þykir hafa skarað framúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu þá hvetjum við þig til að tilnefna viðkomandi fyrirtæki. Athygli er vakin á því að tilnefning er nafnlaus.

Verðlaunahafi verður svo tilkynntur í stafrænum heimi af verndara Ábyrgrar ferðaþjónustu, forseta Íslands þann 11. desember næstkomandi. Nánari upplýsingar um dagskrá koma þegar nær dregur.

SAF – Nefnd um samfélagsábyrgð.

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …