OECD um NæstaSkref.is

Næsta skref

Nýlega kom út skýrsla á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD, um miðlun upplýsinga í tengslum við náms- og starfsval – The role of labour market information in guiding educational and occupational choices. Þar er sjónum beint að mikilvægi þess að slíkar upplýsingar nýtist almenningi sem best og hvernig vefsvæði, sem byggð hafa verið upp í flestum OECD-löndum, geti stutt við árangursríkt náms- og starfsval.

Íslenski vefurinn NæstaSkref.is, sem FA hefur haft umsjón með, er þeirra á meðal og er í skýrslunni sérstaklega vakin athygli á gagnvirku korti sem sýnir dreifingu símenntunarmiðstöðva, sem og þægilegu aðgengi að náms- og starfsráðgjöfum, bæði þar og á vefnum sjálfum. Þá er fjallað sérstaklega um áhugakönnunina og virkni hennar. Í kjölfar skýrslunnar hafa fulltrúar OECD einnig hrósað vefsvæðinu og FA fyrir það hversu læsilegar lýsingar á störfum og námsleiðum eru á vefnum, nokkuð sem vissulega hefur verið lögð nokkur rækt við og gaman að heyra að tekið er eftir.

Nýrri útgáfu vefjarins hefur líka verið vel tekið hér heima og umferð um hann aukist umtalsvert. Lýsingum á námsleiðum fjölgar jafnt og þétt og unnið að nýjungum sem vonandi munu áfram styðja við upplýst og vel ígrundað val fólks á námi eða starfi.

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …