Skráning hafin á Menntadag atvinnulífsins 2021

Menntadagur atvinnulífsins fer fram fimmtudaginn 4. febrúar 2021 undir yfirskriftinni „Færni framtíðar“. Þetta er í áttunda sinn sem Menntadagurinn er haldinn, en að þessu sinni fer dagurinn að öllu leyti fram í Netheimum.

Dagskráin er fjölbreytt og áhugaverð og því vert að taka daginn frá!

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar, Samorku, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Á menntadaginn fer fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fram með rafrænum hætti.

Meðal innslaga í þættinum eru:

  • Greiningar- og nýsköpunarhæfni
    Finnur Oddsson, forstjóri Haga
  • Virkni í námi og námsaðgerðum
    Ingvi Hrannar, kennari og frumkvöðull
  • Lausnamiðuð nálgun
    Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
  • Gagnrýnin hugsun og greining
    Kristín Friðgeirsdóttir, alþjóðlegur stjórnendaráðgjafi
  • Sköpun, frumleiki og frumkvæði
    Dóra Jóhannsdóttir, leikkona
  • Forysta og félagsleg áhrif
    Tryggvi Þorgeirsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Sidekick Health
  • Tækninotkun, eftirlit og stjórn
    Anna Kristín Pálsdóttir, Marel – framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar
  • Tæknihönnun og forritun
    Ægir Már Þórisson Advania, forstjóri Advania
  • Seigla, streituþol og sveigjanleiki
    Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
  • Rökhugsun, lausn vandamála og hugmyndafræði
    Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyrir Vöxtur hjá Eyri Venture Management

Menntatorg atvinnulífsins verður á sínum stað undir stjórn Söru Daggar Svanhildardóttur, verkefnastjóra mennta- og fræðslumála SVÞ og líflegar umræður um menntamál Íslendinga í víðu samhengi setja svip sinn á þáttinn.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA stýrir þættinum.

Það verður forvitnilegt að sjá hvaða fyrirtæki bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið menntaverðlaun atvinnulífsins til þessa. Orkuveita Reykjavíkur var menntafyrirtæki ársins 2020 og Samkaup menntasproti ársins 2020.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …