Fræðslufundur um starfsmanna- og kjaramál

Samtök atvinnulífsins og Samtök ferðaþjónustunnar bjóða félagsmönnum sínum upp á fræðslufundi um starfsmannamál og kjarasamninga sem gagnast öllum sem hafa starfsmannamál á sinni könnu. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundarforrit fimmtudaginn 11. mars kl. 13.00 – 14.15.

  • Skráning á fræðslufundinn fer fram HÉR.

Félagsmönnum gefst færi á að senda spurningar í gegnum spjallþráð forritsins, en slóðin á fundinn verður send út með tölvupósti þegar nær dregur. 

Meðal þess sem verður fjallað um:

  • Ráðning starfsmanna
  • Vinnutímaákvæði kjarasamninga
  • Helstu réttindi og skyldur starfsmanna og vinnuveitanda
  • Uppsagnir og starfslok
  • Orlofsréttur
  • Veikindi og vinnuslys

Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins sjá um fræðsluna.

Fundirnir eru aðeins opnir starfsfólki aðildarfyrirtækja SA og SAF.

  • Vinsamlegast skráið þátttöku HÉR.

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …