Allt um aðalfund SAF 2021

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2021 fór fram með rafrænum hætti í gær, fimmtudaginn 29. apríl.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, flutti ávarp ásamt því að ársskýrsla samtakanna fyrir árið 2020 var kynnt. Rétt er að hvetja félagsmenn til að kynna sér ársskýrsluna sem er bæði ítarleg og fróðleg.

Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um 3 meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára. Jakob Einar Jakobsson, framkvæmdastjóri veitingahússins Jómfrúarinnar, Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og samfélagsábyrgðar Icelandair og Birgir Guðmundsson, hótelstjóri Icelandair Hotel Reykjavík Marina, hlutu kjör í stjórn SAF til næstu tveggja ára.

Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar SAF um að félagsgjald SAF 2021 – 2022 verði reiknað sem 60% af félagsgjaldi ársins 2020.

Þá voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi lokaritgerðir um ferðamál á Íslandi. Var þetta í 16. skipti sem SAF og Rannsóknarmiðstöð ferðamála veita nemendum í grunn- og framhaldsnámi verðlaun fyrir rannsóknir í ferðamálum.

Hér má nálgast allar upplýsingar frá aðalfundi SAF 2021:

Upptaka frá aðalfundi SAF 2021 verður aðgengileg félagsmönnum fljótlega.

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …