Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu – óskað eftir tilnefningum

Þann 19. janúar næstkomandi verður Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn hátíðlegur í Grósku. Af því tilefni er það fyrirtæki verðlaunað sem þykir hafa skarað frammúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og framúrskarandi samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu á árinu.

Tilnefningarnar geta verið frá aðilanum sjálfum eða öðrum og er hægt að tilnefna fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir, einstaklinga eða alla þá sem þykja hafa unnið markvisst að jákvæðri þróun ferðaþjónustu og sjálfbærni, aðilar sem hafa í efni sínu og verki hvatt til ábyrgrar ferðahegðunar, ábyrgra viðskiptahátta og stuðlað að góðri umgengni um íslenska náttúru í sátt við íbúa.

Horft er til eftirfarandi þátta í leitinni að fyrirmyndar fyrirtæki í Ábyrgri ferðaþjónustu:

  • Hefur fyrirtækið birt markmið um ábyrgar ferðaþjónustu á vef sínum?
  • Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um að ganga vel um og virða náttúruna?
  • Hvernig mælir fyrirtækið öryggi ferðamanna og háttvísi í þeirra garð?
  • Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um réttindi starfsfólks?
  • Getur þú gefið dæmi um hvernig fyrirtækið hefur jákvæð áhrif á nærsamfélagið?

Hægt er að tilnefna HÉR.

Ef þú veist um fyrirtæki sem þér þykir hafa skarað frammúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu þá hvetjum við þig til að tilnefna viðkomandi fyrirtæki. Athygli er vakin á því að tilnefning er nafnlaus.

Verðlaunahafi verður svo tilkynntur á Degi Ábyrgrar ferðaþjónustu af verndara Ábyrgrar ferðaþjónustu, forseta Íslands þann 19. janúar 2022.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …