Tekið verði tillit til ferðaþjónustu við mat á virkjunarkostum

Í ljósi breytinga á rammaáætlun í meðförum umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vilja Samtök ferðaþjónustunnar koma á framfæri vonbrigðum sínum yfir þeim breytingum að færa vatnasvæði Héraðsvatna og þar með jökulsárnar í Skagafirði úr verndarflokki yfir í biðflokk. Jökulsárnar í Skagafirði eru gríðarlega mikilvægar fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði og eru flúðasiglingar ein helsta undirstaða ferðaþjónustu á svæðinu.

Þá lýsa SAF yfir miklum vonbrigðum með afstöðu meirihluta nefndarinnar varðandi áhrif vindorkukostsins Búrfellslundar. Meirihlutinn virðist ekki byggja afstöðu sína um lítil áhrif á ferðaþjónustu á neinu sérstöku nema tilfinningu. Samtökin telja varhugavert að setja Búrfellslund í nýtingarflokk.

SAF skora á stjórnvöld að gera ferðaþjónustunni hærra undir höfði við hagsmunamat þegar ákveðið er hvenær og hvar eigi að virkja. Einnig vilja samtökin minna á að ferli áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða sé virkt og að sátt ríki um framtíðarfyrirkomulag orkuvinnslu hér á landi.

SAF fagna því að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hafi lagt til að Skrokkölduvirkjun verði tekin úr nýtingarflokki og sett í bið. Það hefði þó verið betra ef þessi virkjunarkostur hefði verið settur í verndarflokk enda við jaðar stærsta þjóðgarðs Evrópu. Einnig fagna samtökin þeirri breytingu að draga virkjunarkosti úr biðflokk og fella þá úr áætluninni.

SAF hvetja jafnframt umhverfisráðherra til að friðlýsa Torfajökulssvæðið, Grashaga og Sandfell enda liggja svæðin í nágrenni við vinsælustu og mest sóttu gönguleið landsins, Laugaveginn.

Samtök ferðaþjónustunnar
14. júní 2022

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …