Bein útsending frá Ferðaþjónustudeginum 2022

Hér má fylgjast með þráðbeinni útsendingu frá Ferðaþjónustudeginum 2022 sem fram fer í Hörpu, miðvikudaginn 14. september, kl. 15.00.

BEIN ÚTSENDING FRÁ FERÐAÞJÓNUSTUDEGINUM 2022.

Ferðaþjónustudagurinn 2022 fer fram í Norðurljósum í Hörpu í dag, miðvikudaginn 14. september, kl. 15.00.

Íslensk ferðaþjónusta hefur risið hratt upp úr viðjum heimsfaraldurs en áskoranirnar framundan eru þó fjölmargar. Á fundinum verður fjallað um ferðaþjónustu með tilliti til verðmætasköpunar og stöðunnar í hagkerfinu, áhrif greinarinnar á samfélagið og hvað þarf til að tryggja jákvæða uppbyggingu til framtíðar.

Meðal þátttakenda í ferðaþjónustudeginum í ár eru Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, sem munu rýna í stöðu og samspil ferðaþjónustu við aðra þætti efnahagslífsins í kjölfar heimsfaraldurs og í ljósi áskorana í ríkisfjármálum, verðbólguþróun.

Þá munu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar og Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Vök Baths ræða hvernig má viðhalda og styðja jákvæð áhrif ferðaþjónustu á samfélagið, sér í lagi utan höfuðborgarsvæðisins, og Bjarnheiður Hallsdóttir formaður SAF og Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri draga fram áskoranir sem leysa þarf úr til að ferðaþjónusta geti þróast áfram sem jákvæður burðarás efnahagslífs og samfélags.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ferðamála opnar fundinn með ávarpi og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins horfir inn í haustið í lok fundar.

Fundurinn er opinn öllum sem hafa hag af og áhuga á ferðaþjónustu á Íslandi.

Að afloknum fundi verður boðið upp á léttar veitingar, tónlist og netagerð!

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …