Samtök ferðaþjónustunnar fordæma framkomu verkfallsvarða

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma framkomu verkfallsvarða Eflingar við gesti og starfsfólk Íslandshótela síðustu daga.

Það er eðlileg krafa að verkfallsvarsla fari fram með yfirveguðum hætti. Verkfallsverðir Eflingar hafa síðustu daga sýnt einbeittan vilja til að valda æsingi og uppsteyt að óþörfu á hótelum þar sem verkfall er í gildi. Þá hafa þau gengið á og sakað starfsfólk í öðrum stéttarfélögum og starfsfólk annarra fyrirtækja sem sannanlega á ekki að vera í verkfalli um verkfallsbrot að ósekju og sýnt af sér ógnandi framkomu gagnvart þeim.

Síðast en ekki síst hefur þessi framkoma Eflingarfólks valdið óþarfa truflun og ónæði fyrir erlenda gesti, sem eiga engan hlut í vinnudeilum hér á landi, skaðað upplifun þeirra og valdið vanlíðan. Æsingur og ógnandi framkoma verkfallsvarða Eflingar á ekkert erindi við erlenda gesti.

Samtök ferðaþjónustunnar skora á Eflingu að láta þegar af slíkum aðferðum, enda ljóst að markmiðum um verkfallsvörslu verður náð með mun yfirvegaðri hætti.

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …