Á samráðsgátt stjórnvalda birtust 25. september 2023 áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Fyrirhugaðar breytingar varða meðal annars breytingar á lögum um gistináttaskatt og áfengisgjald.
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skiluðu inn umsögn um áformin 6. október 2023.
Gistináttaskattur brenglar samkeppnisstöðu gististaða
Í umsögn sinni benda SAF á vankanta gistináttaskattsins, hvers eðlis hann er og hvernig hann brenglar samkeppnisstöðu gististaða innanlands og á alþjóðamörkuðum. SAF telja réttast að afnema gistináttaskattinn. Þá kemur fram í umsögninni:
„Heimagisting, orlofsgisting og gisting farþega á skemmtiferðarskipum greiða ekki sambærilegar fjárhæðir til hins opinbera í formi skatta og gjalda líkt og fyrirtæki í hótel- og gististaðarekstri. Önnur gisting en fyrirtæki í hótel og gististaðarekstri hefur því samkeppnisforskot sem illa er hægt að réttlæta. Þegar litið er til Norðurlandanna, þeirra ríkja sem Ísland kýs einna helst að bera sig saman við, er ekki rukkaður gistináttaskattur annars staðar en hérlendis. Þeir gististaðir á Íslandi sem gistináttaskatturinn nær til, með og án áætluðum breytingum, sitja þar af leiðandi ekki einungis með ýmist verri samkeppnisstöðu innanlands heldur einnig miðað við samanburðahæfa áfangastaði á Norðurlöndunum.“
Úr umsögn SAF.
Þar að auki er vandséð hvernig tilvist gistináttaskattsins nær tilsettum markmiðum sínum. Enda hefur hann ekki áhrif á hvernig ferðamenn ferðast um náttúruauðlindir lands og þjóðar og verndar þar með ekki né tryggir uppbyggingu fjölsótta ferðamannastaði, friðlýst svæði né þjóðgarða fyrir ágangi þeirra.
Lækkun áfengisgjalda er skref í rétta átt
Í áformum er einnig að finna tillögu um að litlir, sjálfstæðir framleiðendur áfengis greiði lægra áfengisgjald af ákveðnu magni áfengis. SAF fagna því þar sem áfengisgjöld hér á landi eru há í alþjóðlegum samanburði, svo mjög að ærið tilefni er til að leggjast í heildstæða endurskoðun á þeirri gjaldtöku. Það að lækka áfengisgjöldin á þá sem eru litlir og sjálfstæðir framleiðendur telja SAF vera skref í átt að slíkri endurskoðun.
Hins vegar verður ávallt að gæta jafnræðis á milli allra framleiðenda áfengis, smárra jafnt sem stórra, og huga að samkeppnisstöðu á milli innlendra rekstraraðila. Tryggja þarf að álögur sem þessar skapi ekki hvata til óhagræðis þannig að ábati rekstraraðila af lægra áfengisgjaldi tapist. Því telja SAF að taka verði fleiri og stærri skref í rétta átt.
Starfshópur um samkeppnishæfni og verðmætasköpun
Ráðherra ferðamála skipaði sjö starfshópa 26. maí síðastliðinn vegna aðgerðaráætlunar Ferðamálastefnu 2030. Þar á meðal er starfshópur verðmætasköpunar og samkeppnishæfni sem tekur nú fyrir meðal annars rekstrarumhverfi og fyrirkomulag gjaldtöku í ferðaþjónustu. Sjá fleira um starfshópinn og hans vinnu hér.
Þá telja SAF að ekki skuli leggja skatta eða önnur sérstök gjöld á innlenda ferðaþjónustu nema þau hafi hagrænan tilgang fyrir atvinnugreinina. SAF hvetja fjármála- og efnahagsráðuneytið að kynna sér vel vinnu framangreinds starfshóps sem leggur til heildstæðar tillögur að heilbrigðara rekstrarumhverfi til framtíðar.