Kveðja frá Samtökum ferðaþjónustunnar

Kveðja frá Samtökum ferðaþjónustunnar

Góður félagi er fallinn frá. Frumkvöðullinn og hugsjónamaðurinn Hörður Sigurbjarnarson.

Hið glæsilega og framsækna fyrirtæki Harðar, Norðursigling, var stofnfélagi í Samtökum ferðaþjónustunnar. Í aldarfjórðung hefur Hörður verið virkur og öflugur félagsmaður og lagt margt gott af mörkum við að skapa ferðaþjónustu á Íslandi hagfelld rekstrarskilyrði. Hann var ötull talsmaður umhverfisverndar og orkuskipta, hvort sem var á sjó eða landi og talaði máli ferðaþjónustunnar á þeim vettvangi. Hörður var einnig iðinn talsmaður sanngjarns rekstrarumhverfis fyrir útgerðir farþegaskipa og var fulltrúi samtakanna í samræðum við stjórnvöld. Hörður var einn af þeim sem skoraðist ekki undan ábyrgð og lagði sig allan fram í þeim verkefnum sem hann tók að sér. Fyrir það ber að þakka.

Það er skarð fyrir skildi í íslenskri ferðaþjónustu, sem nú hefur misst einn sinn öflugasta liðsmann. Það verður ekki á færi hvers sem er að feta í fótspor Harðar Sigurbjarnarsonar. Hans verður sárt saknað.

Fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar vottum við fjölskyldu og vinum Harðar okkar dýpstu samúð og biðjum alla góða vætti að styrkja þau á þessari sorgarstundu.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður
Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri

—

Minningargreinin birtist í Morgunblaðinu á útfarardegi, þriðjudaginn 23. október 2023.

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …