SKATTSPOR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR: Kynningarfundur 7. desember

Hvert er framlag ferðaþjónustunnar til samfélagsins?

Skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022 verður kynnt á morgunfundi á Grand hótel fimmtudaginn 7. desember. Fundurinn fer fram í salnum Gullteig og hefst kl. 9.00. Húsið opnar kl. 8.30 með léttum morgunverði. Fundurinn er opinn öllum og ókeypis, en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér: https://forms.gle/eGD4AGWKz7dsodUX6

Flutt verða ávörp ásamt því að skýrsla sem Reykjavík Economics hefur unnið fyrir SAF verður kynnt. Þá fara fram umræður um skattspor ferðaþjónustunnar og hvert raunverulegt framlag greinarinnar er til samfélagsins.

Fram koma:

• Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra
• Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF
• Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA
• Magnús Árni Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics
• Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair
• Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins

Diljá Matthíasardóttir, hagfræðingur SAF, stýrir fundinum og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF leiðir umræður.

Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins standa að fundinum.

Tengdar fréttir

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%. Breytingin veikir samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, eykur óvissu í …

Ný skýrsla Hagrannsókna um áhrif viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) á íslenskt flug og ferðaþjónustu staðfestir það sem Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa …

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á …

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …