Snörp endurreisn ferðaþjónustu mikilvæg fyrir Grindavík

Afar mikilvægt er að óvissu rekstraraðila í ferðaþjónustu vegna jarðhræringa og eldsumbrota í námunda við Grindavík verði eytt eins og mögulegt er hið fyrsta.

Ferðaþjónusta hefur á síðustu árum stækkað að umsvifum og er nú orðin verulegur þáttur í atvinnulífinu, er samofin uppbyggingu samfélagsins í Grindavík og tækifærin til framtíðar eru mikil ef rétt er á spöðum haldið.

Samtök ferðaþjónustunnar hafa frá því jarðræringarnar hófust átt í góðum samskiptum við stjórnvöld varðandi stuðningsaðgerðir gagnvart fyrirtækjum í Grindavík. Slíkar aðgerðir munu hins vegar ekk geta komið í staðinn fyrir daglegan rekstur til lengri tíma og því er ljóst að braðnauðsynlegt er að setja kraft í það á vegum stjórnvalda og Almannavarna að setja fram lausnir sem gera fyrirtækjum kleift að hefja daglega starfsemi á ný. Að öðrum kosti mun samfélagið í Grindavík bera enn meiri skaða af uppsögnum og jafnvel brotthvarfi fyrirtækja úr sveitarfélaginu þar sem sum þeirra gætu átt þann eina kost að flytja starfsemina annað.

Í mælaborði SAF á vefnum https://ferdagogn.is má sjá hvernig umsvif ferðaþjónustu í Grindavíkurbæ hafa aukist á undanförnum árum.
  • Árið 2022 störfuðu 16,6% launþega í Grindavík við ferðaþjónustu og launagreiðendur í ferðaþjónustu voru 62
  • Atvinnutekjur í greininni voru rúmlega 2,1 milljarður króna eða 13,1% af heildaratvinnutekjum í sveitarfélaginu
  • Skatttekjur Grindavíkurbæjar af atvinnugreininni voru 379 milljónir króna árið 2022, eða 12,7% af heildarskatttekjum sveitarfélagsins, án jöfnunarsjóðs

Það er því ljóst að ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein í Grindavík, jafnvel mikilvægari en í mörgum öðrum sveitarfélögum á landinu, og að það er ekki síst skýr hagur íbúa Grindavíkurbæjar að unnið sé markvisst og ötullega að því að fyrirtækin geti tekið til starfa á ný sem allra fyrst.

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …