Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2024 fer fram fimmtudaginn 21. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna.

Í kjörnefnd sitja:

  • Eva María Þórarinsdóttir Lange, Pink Iceland (eva@pinkiceland.is)
  • Lára B. Pétursdóttir, Sena (lara@sena.is)
  • Steingrímur Birgisson, Höldur bílaleiga (steini@holdur.is)

Kjörnefnd auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar og formanns SAF fyrir starfsárin 2024 – 2026. Formaður SAF er kjörinn til tveggja ára í senn. Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri.

Þeir tveir frambjóðendur til stjórnar sem ekki hljóta kosningu, en næstir koma þeim sem ná kjöri, teljast varamenn í stjórn til eins árs fram að næsta aðalfundi.

Framboð til formanns og stjórnar skulu hafa borist kjörnefnd skriflega eða rafrænt 14 dögum fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 7. mars 2024.

Hægt er að senda framboð á netfangið saf@saf.is eða á kjörnefndarmenn beint, en netföng þeirra eru hér að ofan.

Samkvæmt lögum SAF ber kjörnefnd að tilkynna félagsmönnum tillögur sínar í síðasta lagi sjö dögum fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 14. mars 2024.

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …