Ferða­þjónusta, inn­flytj­endur og ís­lenskt sam­fé­lag

Undanfarið hafa ferðaþjónusta og innflytjendur átt það sameiginlegt að vera áberandi í fjölmiðlaumræðu og í spjalli á kaffistofum landsmanna með einum eða öðrum hætti. Heyrst hefur að ferðaþjónusta standi á bak við meginþorra þess vaxtar sem orðið hefur í fjölda starfandi innflytjenda hér á landi frá árinu 2017. Þessir sömu innflytjendur eru auk ferðaþjónustunnar sjálfrar auðvitað, sagðir bera ábyrgð á þenslu, verðbólgu, háum vöxtum og húsnæðisskorti.

Umræðan verður að byggja á staðreyndum

Hins vegar er einkar áhugavert að skoða gögn Hagstofu Íslands um fjölda starfandi í hinum ýmsu atvinnugreinum, þar tala staðreyndirnar sínu máli. Frá árinu 2017 hefur fjöldi innflytjenda sem starfa í ferðaþjónustu aukist um 4.737 einstaklinga. Í atvinnugreinum iðnaðarins hefur sá fjöldi aukist um 5.036 einstaklinga á sama tíma og hjá hinu opinbera hefur starfandi innflytjendum fjölgað um 4.057 einstaklinga.

Heildarfjöldi innflytjenda sem störfuðu á Íslandi árið 2023 var 54.114 einstaklingar. Í ferðaþjónustu störfuðu 14.062 innflytjendur í fyrra, 3.273 í sjávarútvegi og 13.284 í atvinnugreinum iðnaðarins. Hjá hinu opinbera störfuðu svo 8.924 innflytjendur á sama tíma. Fjórðungur alls vinnuafls á Íslandi er þannig af erlendu bergi brotinn. Í ferðaþjónustu var hlutfall innflutts vinnuafls 44% í fyrra, 39% í sjávarútvegi og í atvinnugreinum iðnaðarins var það 26% á sama tímapunkti. Hjá hinu opinbera var hlutfall innflutts vinnuafls hins vegar 12%.

Innflytjendur eru nauðsynleg viðbót við atvinnulífið

Lífskjör okkar Íslendinga eru háð burðarstólpum íslensks útflutnings. Af því leiðir að lífskjör okkar byggja að miklu leyti á innflytjendum, enda starfar meginþorri þeirra í stærstu útflutningsgreinunum okkar – ferðaþjónustu, sjávarútvegi og iðnaði. Við Íslendingar gerum kröfu um framúrskarandi lífskjör og að þau batni stöðugt. Staðreyndin er hins vegar sú að innfæddir Íslendingar eru ekki nægilega margir til að standa undir þeim kröfum. Þar af leiðandi þurfum við aðstoð erlendra ríkisborgara til að manna hin ýmsu störf. Það er því hárrétt að það starfa margir frábærir innflytjendur í ferðaþjónustu – en einnig í öðrum atvinnugreinum. Þetta fólk hjálpar okkur að auka hagvöxt og skapa verðmæti, auk þess sem það greiðir skatta og skyldur til samfélagsins og leggur þar með sitt til við uppbyggingu innviða landsins og fjármögnun á velferðarkerfinu.

Lítum okkur nær

Það verður að teljast mjög svo ósanngjörn nálgun að tala um innflytjendur sem hingað flytjast, til þess að sinna hinum ýmsu störfum í grunnatvinnugreinum þjóðarbúsins og hjá hinu opinbera, sem byrði á samfélaginu. Nær væri að við litum í okkar eigin barm og spyrðum okkur hvar við höfum sjálf brugðist í skipulagi og innviðauppbyggingu. Okkur væri þar að auki miklu nær að fagna þessu fólki og gera okkar besta til að stuðla að því að það festi hér rætur og verði hluti af íslensku samfélagi.

Tímarnir breytast og mennirnir með, þau spakmæli eiga svo sannarlega við um íslenskt samfélag. Hvar værum við stödd varðandi lífskjör á Íslandi án innflutts vinnuafls við störf í ferðaþjónustu, sjávarútvegi og iðnaði? Hvar væri opinber þjónusta stödd?

Vöndum okkur í umræðunni og tölum um staðreyndir.

Bjarnheiður Hallsdóttir
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

—

Greinin birtist fyrst á Vísi.is, þriðjudaginn 27. febrúar 2024.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …