Framboð í fagnefndir fyrir starfsárið 2024 – 2025

Á fundi faghópa í tengslum við aðalfund SAF fimmtudaginn 21. mars eru kosnar fagnefndir fyrir starfsárið 2024-2025.

Fagnefndirnar eru mikilvægur liður í grasrótarstarfi samtakanna en þar gefst fyrirtækjum færi á að ræða sameiginleg álitamál og úrlausnarefni og stefnumarkandi málefni er varða viðkomandi starfsgreinar innan ferðaþjónustunnar.

Innan SAF starfa átta fagnefndir: afþreyingarnefnd, bílaleigunefnd, ferðaskrifstofunefnd, flugnefnd, gististaðanefnd, hópbifreiðanefnd, veitinganefnd og siglinganefnd.

Öllum félagsmönnum er heimilt að taka þátt í störfum þeirra faghópa sem falla undir hans starfsemi, en við kosningu til hverrar nefndar hefur hvert aðildarfyrirtæki eitt atkvæði. Rétt er að geta þess að einungis er hægt að skila inn framboði í eina fagnefnd og skal framboðið staðfest af forsvarsmanni eða eiganda fyrirtækis.

Félagsmenn, sem óska eftir að taka sæti í fagnefnd, eru beðnir að skila inn framboði fyrir lok dags mánudaginn 18. mars. Framboðum skal skila rafrænt með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

Tengdar fréttir

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …