Ferðaþjónustudagurinn 2024 – miðasala í fullum gangi!

Ferðaþjónustudagurinn 2024 verður haldinn í Hörpu mánudaginn 7. október undir yfirskriftinni „Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum“. Ráðstefnan fer fram í Silfurbergi og stendur á milli kl. 9.00 og 16.30. Að dagskrá lokinni er gestum boðið að þiggja léttar veitingar og styrkja tengslanetið.

Samtök ferðaþjónustunnar standa að Ferðaþjónustudeginum 2024 í samstarfi við Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarð og Þingvallaþjóðgarð.

Álagsstýring – áskoranir og tækifæri

Á ráðstefnunni verður fjallað um álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum þar sem sjónum verður meðal annars beint að áskorunum og reynslu hér á landi sem erlendis og samtali stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um þetta mikilvæga viðfangsefni. Þá verður jafnframt horft til nýsamþykktrar ferðamálastefnu í þessu samhengi sem leggur áherslu á þrjár víddir sjálfbærnihugtaksins – efnahag, samfélag og umhverfi.

Erlendir og innlendir fyrirlestrar ásamt umræðum

Fyrirlesarar frá stofnuninni Department of Conservation í Nýja Sjálandi, Visit Scotland og Þjóðgarðastofnun Bandaríkjanna (e. National Park Service) munu segja frá skipulagi álagsstýringar á ferðamannastöðum í þessum þremur löndum, rýna í raundæmi og fjalla um reynslu af útfærslu og framkvæmd stýringar á álagi í samhengi við ávinning og áskoranir ferðaþjónustufyrirtækja.

Meðal annarra þátttakenda í ráðstefnunni verða Einar Á. E. Sæmundsen frá Þingvallaþjóðgarði, Ingibjörg Halldórsdóttir frá Vatnajökulsþjóðgarði, Inga Dóra Hrólfsdóttir frá Umhverfisstofnun og Ragnar Árnason frá Háskóla Íslands, ásamt ráðherrum ferðamála og umhverfismála.

Tryggðu þér miða í tíma!

Almennt verð á ráðstefnuna er kr. 14.900. Innifalið í miðaverði eru morgunhressing, hádegisverður, síðdegiskaffi og léttar veitingar í lok dags.

Ráðstefnugestum er bent á að mögulegt er að sækja styrki eða endurgreiðslu á ráðstefnugjaldi og ferðakostnaði til stéttarfélaga og starfsmenntasjóða. Rétt er að geta þess að úthlutunarreglur eru breytilegar eftir sjóðum. Upplýsingar um styrki starfsmenntasjóða er að finna á Áttin.is

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður og Þingvallaþjóðgarður

Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …