Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til 2030 gefin út

Alþingi samþykkti í júní s.l. tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Ferðamálastefnan, og aðgerðaáætlun hennar, hefur nú verið gerð aðgengileg með sérstakri útgáfu sem kynnt var á fjölmennu útgáfuhófi hjá Samtökum ferðaþjónustunnar þann 14. desember 2024. Stefnan og aðgerðaáætlun var unnin í náinni samvinnu við atvinnulíf, grasrót og fagfólk úr ólíkum geirum, en um 100 einstaklingar höfðu beina aðkomu að gerð stefnunnar og aðgerðaáætlunarinnar og yfir þúsund haghafar tóku þátt settu mark sitt á hana í samráðsferlinu.

Framtíðarsýn stefnunnar er að hér á landi sé rekin arðsöm og samkeppnishæf ferðaþjónusta sem starfi í sátt við bæði land og þjóð. Ferðaþjónustan stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld á Íslandi og verði áfram ein af grundvallarstoðum íslensks efnahagslífs. Meginmarkmið ferðamálastefnu er að tryggja framtíðarsýn ferðaþjónustu til lengri tíma og að styðja við sjálfbærni í ferðaþjónustu á öllum sviðum, þannig að íslensk ferðaþjónusta verði þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun.

Við framkvæmd ferðamálastefnu er lögð áhersla á jafnvægi og samþættingu á milli eftirfarandi fjögurra lykilstoða: Efnahagur, samfélag, umhverfi og gestir. Undir hverri stoð er að finna þrjá áhersluþætti sem varða veginn til næstu ára

Með aðgerðaáætlun, sem er hluti ferðamálastefnu, verður framtíðarsýn, áherslum og markmiðum ferðamálastefnu fylgt eftir til 2030 með skilgreindum, kostnaðarmetnum og tímasettum aðgerðum. Alls er þar um 43 aðgerðir að ræða sem skiptast niður á lykilstoðir ferðaþjónustu.

Nánara yfirlit yfir 43 aðgerðir í aðgerðaáætlun ferðamálastefnunnar og stöðu þeirra er að finna á síðunni www.ferdamalastefna.is. 

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …