Auglýst eftir framboðum í stjórn SAF

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2025 fer fram fimmtudaginn 20. mars á Hótel Örk í Hveragerði. Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna.

Í kjörnefnd sitja:

• Lára B. Pétursdóttir, Sena (lara@sena.is)
• Steingrímur Birgisson, Höldur bílaleiga (steini@holdur.is)
• Unnur Svavarsdóttir, Go North (unnur@gonorth.is)

Kjörnefnd auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2025 – 2027. Formaður SAF er kjörinn til tveggja ára í senn. Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri.

Að þessu sinni eru 3 meðstjórnendur í kjöri, en formaður SAF var kjörinn til tveggja ára á aðalfundi árið 2024. Þeir tveir frambjóðendur til stjórnar sem ekki hljóta kosningu, en næstir koma þeim sem ná kjöri, teljast varamenn í stjórn til eins árs fram að næsta aðalfund

Framboð til stjórnar skulu hafa borist kjörnefnd skriflega eða rafrænt 14 dögum fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 6. mars 2025.

Hægt er að senda framboð á netfangið saf@saf.is eða á kjörnefndarmenn beint, en netföng þeirra eru hér að ofan.

Samkvæmt lögum SAF ber kjörnefnd að tilkynna félagsmönnum tillögur sínar í síðasta lagi sjö dögum fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 13. mars 2025.

Tengdar fréttir

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …