Hringborðsumræður með sérfræðingum í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum.
Samtök ferðaþjónustunnar og Iðan fræðslusetur bjóða öllum sem áhuga hafa að taka þátt í 90 mínútna vef-hringborðsumræðum þann 29. apríl nk. (á Zoom) með sérfræðingum í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum. Viðburðurinn er á vegum MCEU verkefnisins og Hosco ráðningarþjónustunnar. Á fundinum verður fjallað um færniþarfir og fræðsluleiðir fyrir fagfólk í greinunum. Umræðurnar byggja á niðurstöðum nýlegrar könnunar sem náði til 3800 starfsmanna í hótel- og veitingagreinum í Evrópu.
Farið verður um víðan völl á hringborðinu og rætt um hluti eins og sjálfbærni, stafræna hæfni, stjórnun og faglega hæfni starfsfólks. Sérstök áhersla verður lögð á þær breytingar sem eru að eiga sér stað á þessum sviðum. Einnig verður fjallað um hvernig hægt er að bregðast við þessum breytingum s.s. með marvissri þjálfun starfsfólks, nýráðningum og faglegri þróunarvinnu.
Umræðunum verður skipt í tvo hluta:
- Kynning á fyrstu niðurstöðum í MCEU verkefninu þar sem fram kemur núverandi og framtíðarþörf færni í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum.
- Pallborðsumræður með alþjóðlegum sérfræðingum sem deila sínum sjónarmiðum og leiðum til úrbóta.
Umræðuna leiða sérfræðingar á sviði hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreina:
- Craig Thompson – Forstjóri, THE-ICE
- Gerard du Plessis – Aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóðlegrar sölu, Lobster Ink (Ecolab)
- John Lohr – Framvæmdastjóri samskiptasviðs, Dusit Thani College
- Krumma Jónsdóttir – Frammistöðuráðgjafi og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði
Þinn ávinningur
- Uppgötvaðu hvaða færni er eftirsótt af fagfólki í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum í dag og í náinni framtíð.
- Lærðu hvernig vinnuveitendur og fræðsluaðilar geta brugðist við vaxandi frænibili (e. skills gap).
- Áttaðu þig á því hvað það er sem knýr fram breytingar, allt frá sjálfbærni til stafrænnar nýsköpunar.
- Kannaðu hvernig aðferðir við þjálfun og örfræðsla eru að breyta fræðsluferlinu.
Hringborðið er tilvalinn vettvangur fyrir fagfólk, leiðtoga, kennara, stjórnendur og stefnumótandi aðila sem hafa hug á því að byggja upp fagfólk framtíðarinnar.