Menningarauðlind ferðaþjónustunnar

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) stendur að ráðstefnunni Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefnu um menningarferðaþjónustu og nýja ferðamálastefnu til 2030 þann 14. maí í Hofi, Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og hlaut verkefnið styrk úr Hvata, sjóði menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Einnig koma að ráðstefnunni fjöldi aðila úr menningargeiranum og ferðaþjónustunni.

Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða samspil og hlutverk menningar í ferðaþjónustu. Enn fremur er ráðstefnunni ætlað að skoða hvernig efla má gagnasöfn og rannsóknavirkni sem stuðlað getur að þróun og framförum á sviði menningarferðaþjónustu.

Á ráðstefnunni gefst gestum kostur á að heyra margvíslegar dæmisögur um vel heppnaða menningarferðaþjónustu og fræðileg erindi um rannsóknir á þessu sviði. Allir þátttakendur geta tekið þátt í hópavinnu um fjögur þemu sem verður nýtt í að þróa rannsóknastefnu RSG á sviði menningarferðaþjónustu. Þemun eru: Samstarf og klasahugsun, Markaðs- og kynningarmál, Vöruþróun og fjárfestingar, Gagnasöfn og rannsóknaáætlun.

Viðburðinum verður streymt en gert verður hlé á streyminu meðan á hópavinnu stendur.

Ráðstefnustjóri er Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri

Dagskrá

09.00 Ávarp – fulltrúi menningarmálaráðherra

09.10 Menningarferðaþjónusta í ferðamálastefnu
Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningarferðaþjónustu í mótun ferðamálastefnu og forstjóri Hörpu

09.20 Dæmisögur af menningarferðaþjónustu:

Landnámssetrið í Borgarnesi
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landnámssetursins

Galdrasýning á Ströndum
Jón Jónsson, þjóðfræðingur

1238 Baráttan um Ísland
Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri

Bræðslan: Geta viðburðir styrkt brothættar byggðir?
Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

Þórbergssetur
Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs

Lava Show
Ragnhildur Ágústsdóttir LadyLava, stofnandi LavaShow

10.30 Kaffihlé

10.45 Áfangastaðir – sögur, söfn og frumkvöðlastarf

Rannsóknir og þróunarverkefni:

Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða
Katrín Anna Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands

Sameiginleg hagsmunamál safna og ferðaþjónustu á Íslandi
Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði

Óáþreifanlegur menningararfur: Þróun og sjálfbærni
Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga

Túrismi, trauma og tækni til miðlunar
Sigurjón Hafsteinsson, prófessor við Háskóla Íslands

11.45 Stuttar umræður

12.00 Hádegisverður

13.00 Hópavinna

  • Samstarf og klasahugsun
  • Markaðs- og kynningarmál
  • Vöruþróun og fjárfestingar
  • Gagnasöfn og rannsóknaáætlun

14.30 Kaffihlé

14.50 Kynningar og umræður á hópastarfi

15.50 Lokaorð – fulltrúi atvinnuvegaráðherra

16.00 Ráðstefnu slitið

Vinsamlegast skráið mætingu ýmist á staðinn eða í streymi hér að neðan. Skráningu lýkur kl. 12 mánudaginn 5. maí.


Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …