Hópmálsókn hótela gegn Booking.com

Samtök ferðaþjónustunnar, evrópsku hagsmunasamtökin HOTREC og yfir 25 landssamtök fyrirtækja í gistiþjónustu víðs vegar um Evrópu standa nú sameiginlega að hópmálsókn gegn Booking.com. Íslensk hótel geta tekið þátt í málsókninni sér að kostnaðarlausu og eru hvött til að skrá sig til þátttöku í gegnum vefinn www.mybookingclaim.com. Athugið að síðasti skráningardagur er 31. júlí 2025.

Hópmálsóknin byggir á dómi Evrópudómstólsins frá 19. september 2024 þar sem staðfest var að svokallaðir verðjöfnunarskilmálar (e. price parity clauses) Booking.com hafi brotið gegn samkeppnislögum Evrópusambandsins.

Nánari upplýsingar er að finna á http://saf.is/hopmalsokn, þar á meðal upplýsingabækling frá HOTREC um málsóknina og grundvöll hennar og helstu spurningar og svör um þátttöku fyrirtækja í málsókninni.

Tilgangur málsóknarinnar er að sækja skaðabætur fyrir tjón hótela

Á árunum 2004 til 2024 notaði Booking.com samkeppnishamlandi skilmála sem settu íslensk hótel í óhagstæða samkeppnisstöðu og ollu rekstraraðilum verulegu fjárhagslegu tjóni. Skilmálarnir komu í veg fyrir verðsamkeppni, leiddu til óeðlilega hárra þóknana og takmörkuðu möguleika til að selja gistingu beint til viðskiptavina.

Samkvæmt evrópskum samkeppnislögum eiga rekstraraðilar rétt á að krefjast bóta frá Booking.com vegna þessa tjóns. Aðstandendur málsóknarinnar áætla að hægt verði að endurheimta verulegan hluta þeirra þóknana sem greiddar voru til Booking.com á tímabilinu 2004-2024, auk vaxta.

Þátttaka í málsókninni felur jafnframt í sér skýr og öflug skilaboð um að evrópsk ferðaþjónustufyrirtæki standi saman þegar kemur að því að verja lögmæt réttindi sín gagnvart ráðandi markaðsaðilum.

Íslensk hótel geta tekið þátt án kostnaðar og lagalegrar áhættu

Þátttaka í málsókninni er gjaldfrjáls og án lagalegrar áhættu. Allur kostnaður er borinn af fjármögnunaraðila málsins og sama teymi sérfræðinga sem stóð að dómi Evrópudómstólsins mun leiða málið áfram, lögmenn, hagfræðingar og sérfræðingar með mikla reynslu á sviði samkeppnismála.

Samtök ferðaþjónustunnar hvetja öll hótel sem hafa ýtt sér þjónustu Booking.com einhvern tíma á tímabilinu 2004-2024 til að  kynna sér upplýsingar um hópmálsóknina á http://saf.is/hopmalsokn og skrá sig til þátttöku í málsókninni á vefnum www.mybookingclaim.com.

Skráningin tekur aðeins nokkrar mínútur og eftir skráningu mun innleiðingarteymi málsóknarinnar hafa samband og leiða fyrirtækið í gegn um ferlið.

Athugið: Síðasti dagur til skráningar er 31. júlí 2025.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …