Frestur til skráningar í hópmálsókn gegn Booking framlengdur til 29. ágúst

Vegna mikillar eftirspurnar frá hótelum um alla Evrópu hefur skráningarfrestur til að taka þátt í hópmálsókn gegn Booking.com verið framlengdur til 29. ágúst 2025.

Yfir 10.000 hótel víðsvegar um Evrópu hafa nú þegar skráð sig til að krefjast skaðabóta frá Booking.com vegna margra ára samkeppnishamlandi skilmála um verðjöfnun, sem Evrópudómstóllinn hefur dæmt ólöglega. Um 100 íslensk fyrirtæki hafa þegar skráð sig, en málsóknin, nýtur stuðnings HOTREC og meira en 30 hótelasamtaka í Evrópu.

Framlengingin gerir fleiri hótelum kleift að taka þátt, þrátt fyrir álagið sem fylgir háönn ferðaþjónustunnar. Skráningar eru enn að berast jafnt og þétt og viðbrögðin endurspegla greinilegan vilja gistigeirans til að bregðast við óréttlátum viðskiptaháttum á stafrænum markaði.

Lögsóknin, sem lögð hefur verið fyrir dómstóla í Hollandi af Hotel Claims Alliance Foundation, byggir á dómi Evrópudómstólsins frá 19. september 2024, um að verðjöfnunarskilmálar Booking.com brytu gegn samkeppnislögum Evrópusambandsins. Markmiðið er að tryggja hótelum bætur vegna fjártjóns sem þau hafa orðið fyrir.

Hótel geta skráð sig á vefsíðunni www.mybookingclaim.com

Nánari upplýsingar um málsóknina er að finna á saf.is/hopmalsokn


Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …