Samningur um Norrænu nema­keppnina undir­ritaður

Frá undirrituninni. Jóhannes Þór, framkvæmdastjóri SAF, Þórir, forseti Klúbbs matreiðslumeistara og Óskar Hafnfjörð, formaður MATVÍS.

Á dögunum skrifuðu Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS og Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara undir nýjan samning um skipulag og framkvæmd Norrænu nemakeppninnar í matreiðslu og framreiðslu.

Með samningnum tekur Klúbbur matreiðslumeistara við umsjón með forkeppni, þjálfun keppenda og þátttöku Íslands í lokakeppninni, sem fram fer í Svíþjóð í apríl 2026. Þess má geta að forkeppnin verður haldin í MK þann 8. nóvember næstkomandi.

Samstarfið er liður í því að efla faglegt starf ungra iðnnema og styrkja ímynd og gæði norrænnar matargerðar og framreiðslu. „Það er mikill heiður fyrir Klúbb matreiðslumeistara að fá tækifæri til að leiða þetta mikilvæga verkefni. Norræna nemakeppnin er einstakur vettvangur fyrir ungt og efnilegt fólk í þessum fögum til að þróast, kynnast kollegum á Norðurlöndum og öðlast dýrmæta reynslu. Við hlökkum til að styðja næstu kynslóð matreiðslumanna og framreiðslufólks í að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi,“ segir Þórir.

Í ár eru 45 ár frá því keppnin var fyrst haldin, árið 1981, en Ísland tók fyrst þátt árið 1986. Frá upphafi hafa SAF og MATVÍS átt í farsælu samstarfi í tengslum við fjármögnun og þátttöku í keppninni. Umsýsla hefur um langt árabil verið í höndum Iðunnar fræðsluseturs, en með þessum nýja samningi við Klúbb matreiðslumeistara er næsta skref stigið í þróun keppninnar.

„Með þátttöku í Norrænu nemakeppninni erum við að styrkja starfsvettvang matvælagreina og þannig vekja áhuga á þeim mikilvægu störfum sem matreiðsla og framreiðsla eru fyrir íslenska ferðaþjónustu,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Óskar Hafnfjörð Gunnarsson er afar ánægður með þennan áfanga. „Það er afar ánægjulegt að sjá hvernig samstarf milli félaga og stofnana heldur áfram að styrkja íslenska fagmenntun í matreiðslu og framreiðslu,“ segir hann.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …