Könnun SAF um vottanir

Samtök ferðaþjónustunnar óska eftir þátttöku ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi í könnun um sjálfbærni-, gæða- og umhverfisvottanir í greininni.

Sjálfbærni, umhverfismál og gæði hafa um langt skeið verið í brennidepli, bæði innan ferðaþjónustunnar og í samfélaginu í heild. Vottanir á þessum sviðum hafa oft verið umræðu, ekki síst þegar kemur að tilgangi þeirra, ávinningi og framkvæmd. Samtök ferðaþjónustunnar hafa því reglulega lagt fyrir könnun til að fá betri yfirsýn yfir stöðu og þróun vottanna innan greinarinnar. Markmið könnunarinnar er að safna áframhaldandi upplýsingum um fjölda vottaðra ferðaþjónustufyrirtækja, kanna viðhorf atvinnugreinarinnar til slíkra vottana og draga fram sjónarmið rekstraraðila varðandi sjálfbærni, gæði og umhverfismál.

Þátttaka fyrirtækja er afar mikilvæg og nýtist samtökunum við stefnumótun, hagsmunagæslu greinarinnar og áframhaldandi þróun ferðaþjónustunnar á Íslandi. SAF hvetja alla rekstraraðila í ferðaþjónustu til að láta sig málefnið varða og taka þátt í könnuninni. Samtök biðja vinsamlega um að forsvarsmenn fyrirtækja svari könnuninni eða komi henni til viðeigandi aðila innan fyrirtækisins til þess að tryggja að sem réttust mynd fáist af stöðu vottana í íslenskri ferðaþjónustu og til að koma í veg fyrir tvísvörun.

Athugið að könnunin er nafnlaus og órekjanleg til einstakra aðila. Hægt er að svara könnuninni til og með 8.mars 2026.

Hægt er að hafa samband við Maríu Rut Ágústsdóttur, verkefnastjóra hjá SAF, á mariarut@saf.is ef spurningar vakna varðandi könnunina.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …