Menntamorgunn: Gesturinn í aðalhlutverki

Hvernig upplifa gestir „gæði“ í dag og hvernig er hægt að endurspegla það í daglegu verklagi? Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu?

Þessum spurningum verður svarað á næsta Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina „Gesturinn í aðalhlutverki“ og fer fram þriðjudaginn 17. febrúar kl. 11:00 – 12:00 í beinu streymi á Facebook síðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Á fundinum rýnum við í hvernig skýrar upplýsingar, samræmd gæði og stöðug áreiðanleg þjónusta skapa trausta upplifun sem gestir treysta. Fjallað verður um hvernig ferðaþjónustuaðilar geta styrkt samkeppnishæfni sína með því að endurspegla þarfir gesta í verkferlum, menningu og þjálfun starfsfólks.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna, er öllum opinn og aðgengilegur í streymi.

Að þessu sinni fáum við til okkar frábæra fyrirlesara úr ólíkum áttum ferðaþjónustu og atvinnulífs, en það eru meðal annars þau:

Skrokkur í sæti?
-Júlíus Freyr Theodórsson, leiðsögumaður

Mikilvægi þjónustuveitingar: frá sjúklingi til tæknistjóra
– Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi

Spegill, Spegill: hvernig endurspeglum við þarfir gesta okkar í gæðaþjónustu?
– Ólína Laxdal, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar

Fundarstjóri er Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness

Skráning hér: https://haefni.is/til-thjonustu-reidubuin/

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …