Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu 21. apríl

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir farinn veg og ræða hvert við viljum stefna í þróun ferðaþjónustu á Íslandi.

👉 Skráning á viðburðinn

Undanfarin ár hefur mikil vinna verið lögð í að efla ábyrga ferðaþjónustu – með aukinni vitund, skýrari viðmiðum og sterkari samvinnu innan greinarinnar. Nú er komið að næsta kafla: að byggja á þessum grunni og móta framtíð sem einkennist af sjálfbærni, nýsköpun og raunverulegri ábyrgð gagnvart náttúru, samfélagi og gestum.

Á dagskrá verða fjölbreytt og lifandi samtöl þar sem rödd greinarinnar fær að heyrast. Við fáum innsýn frá aðilum innan ferðaþjónustunnar, sem deila reynslu sinni og sýn á framtíðina. Einnig verður sérstakt samtal við forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, þar sem ábyrg ferðaþjónusta verður rædd í stærra samhengi samfélags og framtíðar.

Hápunktur dagsins verður afhending hvatningaverðlauna til framúrskarandi fyrirtækis í ábyrgri ferðaþjónustu. Verðlaunin eru veitt til að vekja athygli á góðum fyrirmyndum og hvetja til áframhaldandi framfara í greininni.

Opið er fyrir tilnefningar til hvatningaverðlaunanna, og hvetjum við öll til að senda inn tillögur að fyrirtækjum sem hafa skarað fram úr í ábyrgum rekstri.

👉 Senda inn tilnefningu

Við hlökkum til að sjá ykkur í Grósku þar sem við ræðum stöðuna, deilum reynslu og mótum saman næstu skref í átt að enn ábyrgari ferðaþjónustu.

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …