Raunfærnimat nú í boði fyrir leiðsögufólk

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína og reynslu metna formlega, án þess að hafa endilega lokið hefðbundnu námi á sviðinu.

Raunfærnimatið byggir á því að viðurkenna þá þekkingu og hæfni sem einstaklingar hafa aflað sér í starfi, og getur það verið mikilvægt skref í átt að frekari starfsþróun, námi eða auknum faglegum viðurkenningum.

Allar helstu upplýsingar um framkvæmd matsins, þar á meðal dagsetningar og kostnað, eru aðgengilegar á vefsíðu VR. Einnig má finna nánari umfjöllun um verkefnið á undirsíðu deildar leiðsögufólks hjá VR.

Samtök ferðaþjónustunnar hvetja félagsmenn sína til að kynna þetta nýja úrræði fyrir sínu starfsfólki.

Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …