Ný skýrsla staðfestir áhyggjur af áhrifum ETS á íslenska ferðaþjónustu

skýrsla Hagrannsókna um áhrif viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) á íslenskt flug og ferðaþjónustu staðfestir það sem Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa haldið á lofti um framtíð kerfisins og fyrirhugaða endurskoðun þess árið 2026.

Áhrif ETS á Ísland annars eðlis og neikvæðari en í Evrópu almennt

Í skýrslunni er bent á að Ísland búi við einstakar landfræðilegar aðstæður sem geri áhrif ETS annars eðlis hér en víða annars staðar í Evrópu. Sem eyja í Norður-Atlantshafi er Ísland háð flugsamgöngum fyrir tengingar við alþjóðlega markaði, atvinnulíf og samfélag. Breytingar á kostnaðarumhverfi flugs hafa því víðtæk áhrif á samkeppnishæfni landsins og möguleika til áframhaldandi uppbyggingar ferðaþjónustu.

SAF hafa um langt skeið lagt áherslu á að loftslagsaðgerðir í flugi verði að skila raunverulegum árangri í losunarsamdrætti án þess að skapa óeðlilega samkeppnisskekkju gagnvart afskekktum og flugtengdum hagkerfum. Samtökin styðja metnaðarfull markmið um kolefnishlutleysi í flugi og uppbyggingu sjálfbærs flugeldsneytis, en telja jafnframt mikilvægt að regluverk taki mið af landfræðilegri sérstöðu Íslands og tryggi jafnræði innan innri markaðar Evrópu.

ETS kerfið skekkir samkeppnishæfni Íslands án þess að ná markmiði sínu

Eitt af því sem SAF hafa bent á er að ETS-kerfið fyrir flug var að stórum hluta hannað með styttir vegalengdir innan meginlands Evrópu í huga, þar sem raunhæfir valkostir við flug, svo sem lestir og aðrir samgöngumátar, eru til staðar. Markmið kerfisins hefur meðal annars verið að draga úr flugi á styttri leiðum. Aðstæður Íslands eru hins vegar allt aðrar. Nær allt millilandaflug til og frá Íslandi er mun lengra og engir raunhæfir samgönguvalkostir eru í boði. Því geta áhrif ETS hér orðið meiri en í mörgum öðrum Evrópuríkjum án þess að sambærilegir möguleikar séu til staðar til að breyta ferðavenjum eða velja aðra ferðamáta.

Skýrsla Hagrannsókna bendir meðal annars á að kostnaðaraukning vegna ETS geti haft áhrif á samkeppnisstöðu íslensks flugs og ferðaþjónustu, með mögulegum áhrifum á komu ferðamanna, verðmætasköpun og efnahagsumsvif hér á landi. Fyrir hagkerfi sem byggir að verulegu leyti á útflutningi þjónustu og góðum flugtengingum getur aukinn kostnaður dregið úr samkeppnishæfni landsins gagnvart öðrum áfangastöðum. Jafnframt er fjallað um hættu á tilfærslu flugumferðar og kolefnisleka ef umferð flyst yfir á flugleiðir sem falla utan áhrifasvæðis ETS án þess að heildarlosun minnki að sama skapi. Slík þróun gæti leitt til þess að flug og tengd verðmætasköpun færðist frá Evrópu og Íslandi yfir til svæða þar sem sambærilegar kvaðir eru ekki til staðar, án þess að loftslagsmarkmið náist betur fyrir vikið.

Mikilvægt að atvinnulíf og stjórnvöld sameinist um sterka hagsmunagæslu

Í ljósi fyrirhugaðrar endurskoðunar ETS fyrir flug árið 2026 hafa SAF, Samtök atvinnulífsins og Icelandair unnið sameiginlega að hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustu. Í mars síðastliðnum fóru fulltrúar þessara aðila til Brussel þar sem fundað var með fulltrúum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Evrópuþingsins og öðrum lykilhagsmunaaðilum til að kynna sjónarmið Íslands og leggja fram ítarleg greiningargögn vegna endurskoðunarinnar. Þar var meðal annars lögð áhersla á að tryggja að framtíðarfyrirkomulag ETS taki tillit til þeirra sérstöku aðstæðna sem ríki eins og Ísland búa við og að loftslagsaðgerðir leiði ekki til skertrar samkeppnishæfni eða tilfærslu flugumferðar út fyrir áhrifasvæði kerfisins. Þá hafa þessir aðila unnið þétt með stjórnvöldum til að tryggja langtímalausn sem hentar betur Íslenskum aðstæðum.

SAF munu áfram vinna að því að loftslagsstefna Evrópu styðji bæði við markmið um samdrátt í losun og viðhaldi nauðsynlegri tengingu Íslands við alþjóðlega markaði. Markmiðið er að ná fram lausnum sem sameina umhverfislegan árangur, samkeppnishæfni og áframhaldandi þróun íslenskrar ferðaþjónustu.

Smellið hér til að lesa skýrslu Hagrannsókna um ETS kerfið

Tengdar fréttir

Ný skýrsla Hagrannsókna um áhrif viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) á íslenskt flug og ferðaþjónustu staðfestir það sem Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa …

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á …

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …