Ferðaþjónustukakan afhent ferðamálaráðherra

Ferðaþjónustukakan afhent atvinnuvegaráðherra

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra þá áskorun að eiga jákvætt samtal við fulltrúa greinarinnar um hvernig blómstrandi ferðaþjónusta getur skilað enn stærri sneið til samfélagsins.

Ferðaþjónusta á Íslandi er kraftmikil atvinnugrein sem hefur á undanförnum árum náð eftirtektarverðum árangri. Hún er ein stærsta atvinnugrein landsins, ábyrg fyrir þriðjungi útflutningstekna Íslands og skapar tugþúsundir starfa. Ferðaþjónusta hefur kveikt líf og fjölbreytni um land allt, ekki síst á landsbyggðinni, þar sem greinin hefur búið til ný tækifæri og byggt upp fjölbreytta  þjónustu.

Við í ferðaþjónustunni erum stolt af þessum árangri og viljum halda áfram. Aukin gjaldtaka og skortur á fyrirsjáanleika minnkar hins vegar ávinning samfélagsins af atvinnugreininni, dregur úr mætti ferðaþjónustu, seiglu og samkeppnishæfni, skaðar fjárfestingar í gæðum og framtíðaruppbyggingu og hefur neikvæð áhrif á nærsamfélög um allt land.

Jákvæðar leiðir til að afla sömu eða hærri tekna fyrir ríki, sveitarfélög og samfélagið allt eru vel þekktar, raunhæfar og árangursríkar leiðir sem styðja við markmið ferðamálastefnu og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Ferðaþjónustan skorar því á stjórnvöld að vinna markvisst með atvinnugreininni að því að auka tekjur samfélagsins af henni.

Ferðamálaráðherra tók enda kökunni vel og þakkaði góða brýningu:

Í morgun fékk ég góða brýningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Við erum með sömu markmið um að stækka kökuna og samvinnan við atvinnugreinina er mér mikils virði. Mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir þjóðarbúið er óumdeilt. Hún er ein af burðarstoðum atvinnulífins. Við þurfum að efla og styrkja hana enn frekar sem heilsársatvinnugrein, það er stefnan í mínu ráðuneyti. Á næstu mánuðum verður hleypt af stokkunum markaðsherferð með það að leiðarljósi að draga úr árstíðar sveiflum og stuðla að dreifingu ferðamanna um allt land. Eftir henni hefur lengi verið kallað og er þetta bara fyrsta skrefið. Framundan eru spennandi tímar með einföldun stjórnsýslu ferðamála þar sem áhersla er lögð á samkeppnishæfni Íslands og verðmætasköpun greinarinnar.

Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …